Problem H
Sushi
                                                                Languages
                        
                            
                                                                    en
                                                                    is
                                                            
                        
                                                                
   
      Sigríður er eigandi Mæju-Sushi sem er einn vinsælasti sushi staður á landinu. Mæju-Sushi er svona vinsælt útaf dularfullu sushi pökkunum þeirra. Þegar viðskiptavinur kaupir dularfullan sushi pakka hefur viðskiptavinurinn ekki hugmynd um hvað er í honum, eina sem hann veit er að ef hann kaupir pakka fyrir verð $2^{i}$ krónur að þá eru $i$ mismunandi bragðtegundir í pakkanum og allavega $k$ sushi af hverri bragðtegund.
Sigríður hefur verið í miklum vanda við að búa til pakka þannig það sé hægt að selja þá fyrir sem mestan pening. Sigríður hefur $n$ sushi $a_1,a_2,\dots ,a_ n$ röðuð á borð þar sem $a_ i$ merkir bragðtegund $i$-ta sushi-sins. Þegar Sigríður býr til pakkana tekur hún nýjan kassa sem er upprunalega tómur, en svo getur hún valið hversu mörg af fremstu sushi-unum hún tekur áður en hún lokar og byrjar á næsta pakka. Svona gengur þetta koll af kolli þangað til ekkert sushi er eftir.
Getur þú sagt Sigríði hvert mesta virði pakkanna samtals gæti verið ef hún myndi pakka þeim á sem bestan hátt.
Ef pakki inniheldur $i$ mismunandi bragðtegundir og það er minna en $k$ sushi af einhverri af þessum $i$ bragðtegundum þá verður pakkinn virði $0$ krónur.
Inntak
Fyrsta línan inniheldur tvær heiltölur $n$ og $k$ þar sem $1 \leq k \leq n \leq 10^5$ Næsta lína inniheldur $n$ heiltölur $a_1,a_2,\dots ,a_ n$, þar sem $1 \leq a_ i \leq 32$.
Úttak
Skrifa á út eina tölu, mesta magn penings sem Sigríður getur eignast ef hún pakkar sushi-inu sem best.
Stigagjöf
| Hópur | Stig | Takmarkanir | 
| 1 | 7 | $a_ i = 1$ og $n \leq 20$ | 
| 2 | 21 | $n \leq 20$ | 
| 3 | 31 | $n \leq 1\, 000$ | 
| 4 | 41 | Engar frekari takmarkanir | 
| Sample Input 1 | Sample Output 1 | 
|---|---|
| 7 2 1 1 2 2 3 1 3 | 8 | 
| Sample Input 2 | Sample Output 2 | 
|---|---|
| 8 1 1 2 3 4 1 1 2 3 | 26 | 
